Upphafið að stofnun Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi var að Samband borgfirskra kvenna hóf fjársöfnun á árunum 1966 - 1967 og stofnaði síðan sérstaka nefnd til að hefja undirbúning að byggingu dvalarheimilis aldraða í héraðinu. Síðar komu inn í verkefnið hrepparnir í Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu innan Skarðsheiðar og seinna hrepparnir úr Hnappadalssýslu.
Fjáröflunarnefnd S.B.K. starfaði allt til ársins 1980 og var þar unnið mikið og óeigingjarnt starf og safnað fjármunum sem komu sér vel þegar til framkvæmda kom.
DAB er sjálfseignarstofnun og stofnaðilar er áðurnefndir, í dag eru bakhjarlar heimilisins sveitarfélögin Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur og Skorradalur auk þess sem Samband borgfirskra kvenna er sem fyrr bakhjarl heimilisins og á einn fulltrúa í stjórn.
Fyrsti áfangi heimilisins var byggður á árunum 1968 - 1970 og var sá hluti tekinn í notkun 31. janúar 1971 með rými fyrir 29 heimilismenn og var það strax fullskipað. Síðar var hafist handa við byggingu annars áfanga og var hann tekinn í notkun árið 1975 og svo þriðji og síðasti áfangi í byrjun árs 1983. Þegar heimilið var komið í þessa stærð voru heimilismenn af jafnaði í kringum 55 en nú hin seinni ár hafa tala íbúa verið um 50 eftir að hjúkrunarrýmum fjölgaði og nýting á tvíbýlum varð erfiðari. Í fyrstu var heimilið rekið eingöngu sem dvalarheimili en frá 1. janúar 1989 voru 12 plássum breytt í hjúkrunarrými og hjúkrunarrýmin urðu síðan 20 frá 1. janúar 1996. Í dag eru hjúkrunarrýmin 30 auk tveggja hvíldarinnlagnarrýma, dvalarrýmin eru 18, að auki er DAB með heimild fyrir 3 dagdvalarrýmum.
Núverandi húsnæði er 2.480 fm. á þremur hæðum. Heimilsmenn búa í eins og tveggja manna herbergjum. Vistarverur til sameiginlegra nota eru margar, t.d. góður samkomusalur, iðjustofa/handavinnustofa sem opin er alla virka daga milli kl. 9:00 - 16:00, setustofur með sjónvarpi, bókasafn er á staðnum, hárgreiðslustofa og fótsnyting eru á jarðhæðinni. Fullkomið eldhús er á heimilinu sem eldar fyrir heimilisfólk og starfsfólk auk þess sem eldaður er matur sem sendur er til eldri borgara í Borgarnesi í hádeginu alla daga. Þvottahús heimilisins sér um þvott fyrir heimilið og heimilisfólk.
Starfsfólk á DAB er rúmlega 70 í rétt um 40 stöðugildum.