Þjónusta DAB.
Faglegt starf á DAB hefur eflst á undanförnum árum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum hefur fjölgað, ekki síst vegna þess að gamalreyndir starfsmenn heimilisins hafa sótt sér réttindi í gegnum nám. Forstöðumaður hjúkrunarsviðs ber faglega ábyrgð á starfi DAB og er öðrum starfsmönnum til ráðgjafar.
Læknar Heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi eru DAB innan handar, heimilið er með samning við Heilsugæsluna um þjónustu, heimilið á fasta tíma hjá læknum á dagtíma og hefur einnig aðgang að þeim ef bráðatilvik koma upp, sama á hvaða tíma sólarhrings.
DAB er með samning við sjúkraþjálfara sem tekur heimilisfólk í meðferð og þjálfun. Eins er forstöðumaður þjónustusviðs með leikfimi fyrir heimilisfólk, bæði í hóptímum tvisvar í viku sem og í einkatímum.
Messur eru að jafnaði einu sinni í mánuði á DAB og kemur þá sóknarprestur ásamt kór og messar í samkomusal heimilisins.
Handavinnustofa/iðjustofa er á jarðhæð og er hún opin alla virka daga milli kl. 9:00 – 16:00, þar er margskonar iðja stunduð, handavinna og einnig erum við með verkefni frá BM Vallá við að setja skinnur á nagla. Sláturnælur eru einnig framleiddar og eru þær í sölu í ýmsum stórmörkuðum. Árviss hefð er fyrir því að basar sé haldinn á haustmánuðum þar sem boðnir eru til sölu munir sem framleiddir eru af heimilisfólki á DAB, samhliða basarnum er boðið upp á kaffihlaðborð og er ágóðanum af þeirri sölu varið til sumarferðalags heimilis og starfsfólks á DAB.
Hægt er að panta hárgreiðslu og klippingu hjá hárgreiðslukonu á jarðhæð heimilisins. Sú þjónusta er gegn gjaldi. Fótaaðgerðarfræðingur er einnig með aðstöðu á jarðhæð, DAB er með samning við þann aðila um fótsnyrtingu tvisvar á ári fyrir hvern heimilismann, heimilið sér um þann kostnað sem af því hlýst.
Reykingar eru bannaðar á DAB nema í sérstöku reykherbergi á jarðhæð sem ætlað er eingöngu fyrir heimiisfólk á DAB. Af öryggisástæðum eru reykingar bannaðar á herbergjum heimilisfólks.
Ýmsar upplýsingar.
Aðstandendum er velkomið að koma í heimsókn á heimilið og er heimsóknartími frjáls. Besti tíminn er þó á milli kl. 11:00 til kl. 21:00. Við viljum hvetja gesti til að fá sér kaffi og með því með heimilisfólki ef gesti ber að garði á kaffitíma, einnig viljum við benda á stofu á annarri hæð heimilisins þar sem notalegt er að setjast niður. Einnig er öll tilbreyting sem aðstandendur geta boðið heimilisfólki upp á af hinu góða, t.d. gönguferðir, bílferðir eða heimsóknir til vina og ættingja. Helgar og bæjarleyfi eru mikilvægur þáttur í bættum lífsgæðum hins aldraðra. Heimilisfólk á DAB getur að sjálfsögðu brugðið sér í slík leyfi treysti þeir sér til þess.
Matmálstímar á DAB:
Morgunverður: kl. 8:30 – 9:30
Hádegisverður: kl. 11:30 – 12:00
Síðdegiskaffi: kl. 14:30 – 15:00
Kvöldverður: kl. 18:00 – 18:30
Kvöldhressing: kl. 20:00 – 20:30
Persónuleg verðmæti.
Mælt er með því að heimilisfólk á DAB fái starfsfólk til að geyma verðmæti í læstri hirslu þar sem heimilið ber ekki ábyrgð á þeim að öðrum kosti. Mælst er til þess að heimilisfólk geymi ekki mikil verðmæti (peninga) hjá sér.
Íbúar kaupa sjálfir persónulegar snyrtivörur eins og tannbursta, tannkrem, ilmvötn, krem, rakáhöld, hárvörur og aðrar snyrtivörur.
Fatnaður.
Heimilið sér um að fatnaður íbúa sé þveginn og starfsfólk sér um að merkja fatnað heimilisfólks. Kaup og eftirlit með fatnaði er í höndum aðstandenda og mikilvægt er að ný föt séu örugglega merkt áður en þau eru notuð svo að þau týnist ekki eftir fyrsta þvott. Áhersla er lögð á að heimilisfólk geti verið snyrtilegt til fara. DAB hefur komið á tengiliðakerfi þannig að auðvelt á að vera fyrir aðstandendur að grennslast fyrir um ástand á fatnaði heimilisfólks og því hvort snyrtivörur vanti.
Markmið DAB.
Markmið okkar starfsmanna Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi er að okkar fólki, heimilisfólki á DAB, líði sem best hjá okkur, við gerum okkur grein fyrir því að við störfum inn á heimili fólksins, það dvelur ekki á vinnustaðnum okkar. Við leggjum áherslu á að bera virðingu fyrir einstaklingnum, fyrri venjum hans og siðum. Einnig að hann og fjölskylda hans njóti trúnaðar og umhyggju í samskiptum. Við leggjum áherslu á að styðja við bak einstaklingsins svo hann megi halda sjálfstæði, virkni, lífsgleði og reisn til æviloka. Vil viljum veita góða andlega, líkamlega og félagslega þjónustu og styðjast við viðurkennd viðmið.