 |
Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes
Borgarbraut 65
310 Borgarnes
Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is
Fyrsta skóflustunga 26.ágúst 2010

Kartöflur frá Grenigerði og aðalbláber úr ReykholtsdalnumEins og oft hefur verið nefnt á Dvalarheimilið mikið af góðum vinum og nýtur góðvildar margra. Þau sæmdarhjón í Grenigerði, Rita og Páll, hafa undanfarin tvö sumur komið með glænýjar kartöflur í soðið fyrir heimilimenn og starfsfólk á DAB án þess að fara fram á nokkra greiðslu, framlag þeirra hjóna er afar þakkarvert. Að auki koma oft "sendingar" inn á heimilið líkt og sú sem kom nú fyrir nokkrum dögum þegar ritstjóri Skessuhorns, Magnús frá Birkihlíð, kom með rúmlega 12 kíló af aðalbláberjum og skildi eftir,heimilis- og starfsfólki til mikillar ánægju. Nýjar myndirNú eru komnar inn á myndasíðu okkar myndir sem teknar voru af Magnúsi Magnússyni, ritstjóra Skessuhorns, þegar þau Herdís Guðmundsdóttir og Þórður Kristjánsson tóku fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við Dvalarheimilið með dyggri aðstoð Árna Páls Árnasonar félags- og tryggingarmálaráðherra. Til gamans má geta þess að það var Kaupfélag Borgfirðinga sem gaf heimilinu þessa glæsilega silfurslegnu skóflu sem sést á borðinu á myndinni af þeim Magnúsi B. Jónssyni, formanni stjórnar DAB, og Óla Jóni Gunnarssyni, stjórnarformanni Byggingarfélagsins Borgfirðinga ehf. Framkvæmdir að fara af stað við Dvalarheimilið
Það var glatt á hjalla og létt yfir íbúum og starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi í dag. Stór stund var upp runnin, fyrsta skóflustunga að byggingu hjúkrunarálmu var tekin. Um er að ræða viðbyggingu sem er að heildarflatarmáli um 2550 fermetrar auk þakrýmis fyrir lagnir. Í nýbyggingunni verða 32 hjúkrunarrými sem þegar er leyfi fyrir, þ.e. ekki er um fjölgun rýma að ræða heldur verður bættur aðbúnaður þeirra íbúa sem nú dvelja á heimilinu. Í kjölfar þess að nýbyggingin verður tekin í notkun sumarið 2012 verður hafist handa við endurbætur...

|
 |