Fjör á Þorrablóti
Það er óhætt að segja að það hafi verið fjör á Þorrablóti sem heimilisfólk og starfsmenn DAB héldu fimmtudaginn 4. febrúar s.l. Eftir að heimilismenn höfðu gætt sér á þorramatnum þá tók við skemmtidagskrá þar sem fram komu listamenn úr héraði. Fyrst sungu fjórar ungar blómarósir, þær Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Hera Svansdóttir og Díana Brá Bragadóttir, tvö lög. Á eftir þeim kom snillingurinn Bjartmar Hannesson og spilaði og söng. Línudansarar mættu í kjölfar Bjartmars, þrír vaskir sveinar sem unnu hug og hjörtu heimilismanna með frábærum dansi, þeir Arnar, Logi og Aðalsteinn slógu svo sannarlega tóninn fyrir það sem kom í kjölfarið því langt er síðan að eins mikið hefur verið dansað á þorrablóti DAB eins og í þetta skiptið. Það var húsvörðurinn okkar og þúsundþjalasmiðurinn Vignir Sigurþórsson sem lék fyrir dansi. Að dansi loknum var síðan farið í spilabingó þar sem hver vinningurinn a fætur öðrum rann út undir öruggri stjórn Margrétar Sigurþórsdóttur. Starfsfólki DAB og þeim sem komu og skemmtu er þakkað fyrir alla aðstoðina og skemmtunina þetta góða kvöld.