Góð gjöf til DAB
Ættingjar Jóhannesar Þorbjarnarsonar færðu Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi veglega peningagjöf 18. desember s.l. til minningar um Jóhannes sem dvaldi um 6 ára skeið á DAB. Gjöfin óskast nýtt í þágu heimilismanna á dvalarheimilinu. Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Huldu Ingvarsdóttur og Sigurð Kristjánsson færa Jórunni Maríu Ólafsdóttur, forstöðumanni hjúkrunarsviðs DAB, gjafabréfið góða.