Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturgerðar
Minnsta Leturgerð

Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes

Borgarbraut 65
310 Borgarnes

Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is


Þorrablót 29.2.2012
Íbúar DAB
Minningarsjóður DAB

18. desember 2009

Geiri og Annabella buðu í veislu

Það var svo sannarlega skemmtileg stund miðvikudaginn 16. desember s.l. þegar heimilisfólk og nokkrir starfsmenn DAB þáðu boð þeirra hjóna, Önnubellu og Geira bakara, um að koma og drekka alvöru súkkulaði og borða rjómatertu í Geirabakarí.  Þetta er annað árið í röð sem stund sem þessi á sér stað á aðventunni og í bæði skiptin hefur ánægjan skinið af heimilismönnum sem tök hafa haft á að þiggja þetta góða boð.  Ekki er nóg með að þeir sem mæta njóti veislufanga heldur nesta þau okkur með tertu sem þeir heimilismenn sem ekki eiga heimangengt fá að njóta.  Hafið þökk fyrir kæru vinir, Annabella og Geiri !