Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturgerðar
Minnsta Leturgerð

Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes

Borgarbraut 65
310 Borgarnes

Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is


Jólaball 2011
Íbúar DAB
Minningarsjóður DAB

18. desember 2009

Líf og fjör á aðventunni

Desembermánuður og aðventan hefur svo sannarlega verið viðburðarríkur tími á DAB.  Okkar tryggu og góðu vinir í kvenfélögum héraðsins hafa heimsótt okkur með skemmtidagskrá og haft veitingar og veisluföng í farteskinu.  Samkór Mýramanna og Kór félags eldriborgara hafa komið og skemmt heimilisfólki. 

Aðventukvöld var haldið þar sem sóknarprestur okkar, Þorbjörn Hlynur Árnason predikaði og Kirkjukór Borgarneskirkju söng undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. 

Leikskólabörn hafa einnig kíkt í heimsókn og sungið og fengið að skoða heimilið.  Öllum þessum aðilum viljum við þakka kærlega fyrir vinarhug og notalegheit í garð okkar heimilismanna og starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi.