Basarinn á DAB vel sóttur
Það er talið að á bilinu 400-500 manns hafi sótt Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi heim laugardaginn 7. nóvember þegar hinn árlegi basar heimilisfólks var haldinn. Sala á handavinnu heimilisfólks gekk mjög vel sem og kaffisala sem starfsmenn heimilisins höfðu veg og vanda að. Allur ágóði af kaffisölu rennur til sumarferðar heimilisfólks og ágóði af handavinnusölu rennur til efniskaupa. Það er afar ánægjulegt að finna þann hlýhug sem fólk ber til Dvalarheimilisins og vel er hægt að finna þann hlýhug á degi sem þessum. Ástæða er til að þakka starfsmönnum DAB fyrir daginn en þeir standa vaktina í undirbúningi og framkvæmd basarsins í sjálfboðavinnu.