 |
| Myndarlegur hópur starfsmanna DAB. |
Stjórn DAB samþykkti á fundi sínum fyrr í haust að taka upp þann sið að veita starfsaldursviðurkenningar á árshátíð starfsmanna sem haldin er í október ár hvert. Viðurkenningar voru afhentar á árshátíðinni sem haldin var laugardaginn 31. október s.l. og fengu 23 starfsmenn viðurkenningu fyrir vel unnin störf í 10 ár eða meira. Þeir Magnús B. Jónsson, formaður stjórnar DAB og Jón G. Guðbjörnsson, varaformaður stjórnar DAB, afhentu viðurkenningar. Það er afar mikilvægt fyrir Dvalarheimilið að búa yfir þessari miklu og góðu reynslu sem þetta fólk hefur áunnið sér á undanförnum árum. Þeir sem fengu viðurkenningu eru:
10 ára starfsaldurviðurkenning:
Helga Karlsdóttir, Sigrún Sólmundardóttir, Vignir Sigurþórsson, Sigurbjörg Helgadóttir, Sigríður Herdís Magnúsdóttir, Inga Guðjónsdóttir, Kristjana Lilliendahl og Bjargey Magnúsdóttir.
15 ára starfaldursviðurkenning:
Björk Gísladóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Anna Kristín Pétursdóttir, Dröfn Traustadóttir, Margrét Sigurþórsdóttir og Dóra G. Sigurðardóttir.
20 ára starfsaldursviðurkenning:
Sigríður H. Skúladóttir, Halla Magnúsdóttir, Sólrún Egilsdóttir og Guðmunda G. Jónsdóttir.
25 ára starfsaldursviðurkenning:
Anna Rafnsdóttir, Bára Guðmundsdóttir, Ólöf Gunnarsdóttir og Þóra Eygló Sigurðardóttir.
30 ára starfsaldursviðurkenning:
Birna Jakobsdóttir.