Árshátíð starfsmanna DAB
Árshátíð starfsmanna DAB var haldin í Reykholti laugardaginn 31. október s.l. Mæting var mjög góð og tókst skemmtunin vel undir styrkri stjórn skemmtinefndar starfsmanna, þær Karen Welding, Sigrún Sólmundardóttir og Guðríður Ringsted höfðu veg og vanda að þessu skemmtilega kvöldi. Þeir Vignir Sigurþórsson og Gunnar Ringsted spiluðu síðan fyrir dansi fram á rauða nótt.