Eldvarnaræfing afstaðin
Það var stór hópur fólks sem kom að eldvarnaræfingu á DAB miðvikudaginn 7. október. Rúmlega 100 manns komu að æfingunni og þá er heimilisfólk á DAB ekki meðtalið en óhjákvæmilega varð heimilisfólk vart við það "brölt" sem á göngum heimilisins varð. Starfsfólk DAB og einstaklingar sem fengnir voru að "láni" úr Menntaskóla Borgarfjarðar "léku" heimilismenn og voru æfð viðbrögð við því ef upp kæmi sú hörmulega staðreynd að eldur væri laus og að alrýma þyrfti heimilið. Allir sem að æfingunni stóðu sig með sóma en greinilegt er að æfingar sem þessi eru nauðsynlegar af og til, ekki síst til að samhæfa aðgerðir. Kunnum við öllum sem að æfingunni komu, þ.e. starfsfólki DAB, nemendum MB,slökkviliðsmönnum, björgunarsveitarfólki, Rauða Krossinum, starfsfólki Heilsugæslunnar, lögreglu og almannavarnarnefnd þakkir fyrir þeirra aðkomu og góð samskipti við undirbúning og framkvæmd.