Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturgerðar
Minnsta Leturgerð

Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes

Borgarbraut 65
310 Borgarnes

Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is


Þorrablót 29.2.2012
Íbúar DAB
Minningarsjóður DAB

13. janúar 2012

Samþætting á þjónustu við aldraðra á starfssvæði DAB

Í tengslum við 40 ára afmælishátíð Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi (DAB) sem haldinn var 29. janúar 2011 var haldið málþing á vegum stjórnar DAB í samstarfi við Atvinnuráðgjöf Vesturlands.  Þar var rætt um möguleika á samþættingu á þjónustu við aldraða á starfssvæði DAB sem spannar Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp og Skorradalshrepp.  Í tengslum við málþingið og í kjölfar þess var vinnuhópur að störfum sem skilað hefur af sér skýrslu sem nýst getur sem innlegg í frekara samtal um málaflokkinn.  Í vinnuhópnum sátu fulltrúar frá DAB, sveitarfélögunum og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands auk starfsmanna Atvinnuráðgjafarinnar.  Á næstunni munu hlutaðeigandi aðilar fara yfir niðurstöður skýrslunnar sem nálgast má hér.  Hér með eru öllum þeim sem að vinnunni komu þakkað fyrir þeirra framlag, ekki síst þeim sem tóku þátt í góðri umræðu á málþinginu í Hjálmakletti.