Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturgerðar
Minnsta Leturgerð

Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes

Borgarbraut 65
310 Borgarnes

Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is


Þorrablót 29.2.2012
Íbúar DAB
Minningarsjóður DAB

26. ágúst 2010

Framkvæmdir að fara af stað við Dvalarheimilið

 

Það var glatt á hjalla og létt yfir íbúum og starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi  í dag.  Stór stund var upp runnin, fyrsta skóflustunga að byggingu hjúkrunarálmu var tekin.  Um er að ræða viðbyggingu sem er að heildarflatarmáli um 2550 fermetrar auk þakrýmis fyrir lagnir.  Í nýbyggingunni verða 32 hjúkrunarrými sem þegar er leyfi fyrir, þ.e. ekki er um fjölgun rýma að ræða heldur verður bættur aðbúnaður þeirra íbúa sem nú dvelja á heimilinu.  Í kjölfar þess að nýbyggingin verður tekin í notkun sumarið 2012 verður hafist handa við endurbætur á núverandi húsakosti Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi  sem er að grunni til síðan 1971.

„Þetta er stór stund, íbúar og starfsmenn hafa beðið hennar lengi og mikið gleðiefni að nú verði hafist handa.  Auðvitað er ljóst að töluvert rask verður í kringum heimilið og nágrenni þess á næstunni en það er þess virði“  sagði Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri DAB við þetta tilefni.  Nýja heimilið er byggt eftir þeim stöðlum sem félags- og tryggingamálaráðuneytið gaf út um aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum seinni hluta árs 2008 og er byggt eftir hinni svokölluðu leiguleið, þ.e. heimaaðilar byggja og ríkið leigir til 40 ára.  Sveitarstjórn Borgarbyggðar og stjórn Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi undirrituðu í maímánuði samkomulag þess efnis að dvalarheimilið, sem er sjálfseignarstofnun, sér um hönnun og framkvæmdaþáttinn.

Arkitekt að viðbyggingunni er Einar Ingimarsson, arkitekt, verkfræðihönnun sá VSÓ Ráðgjöf um.   Eftirlit með framkvæmdum af hálfu DAB er í höndum Verkís.

Fyrsta skóflustunga að hjúkrunarheimilinu var tekin af Herdísi Guðmundsdóttur, elsta íbúa heimilisins og Þórði Kristjánssyni, sem sat í stjórn DAB í um 20 ár, með dyggri aðstoð félags- og tryggingamálaráðherra, Árna Páls Árnasonar.   Í kjölfar þess  voru undirritaðir samningar á milli Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi og Byggingarfélagsins Borgfirðinga ehf um framkvæmd verksins.  Byggingarfélagið Borgfirðingar var með lægsta verð í verðkönnun sem framkvæmd var af hálfu stjórnar Dvalarheimilisins.