Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturgerðar
Minnsta Leturgerð

Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnes

Borgarbraut 65
310 Borgarnes

Sími: 4371285
Fax: 4372185
Netfang: dab@dab.is


Jólaball 2011
Íbúar DAB
Minningarsjóður DAB

25. maí 2010

Ráðherra í heimsókn

Þriðjudagsins 25. maí verður minnst á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.  Félags og tryggingarmálaráðherra kom á heimilið og undirritaði samning við Borgarbyggð um byggingu á hjúkrunarheimili.  Einnig var undirritaður samningur á milli Borgarbyggðar og stjórnar Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi um umsjón með uppbyggingu sama heimilis.  Það voru þeir Árni Páll Árnson og Páll S. Brynjarsson sem undirrituðu fyrri samninginn en Páll og Magnús B. Jónsson, formaður stjórnar DAB, sem undirrituðu seinni samninginn.  Með undirritunum þessum lýkur löngu og ströngu ferli sem átt hefur sér stað og aðdraganda undanfarin ár.  Heimilisfólk og starfsmenn DAB ásamt góðum gestum fögnuðu þessum áfanga með rjómatertu og tilheyrandi, nú er bara að vona að framkvæmdir geti hafist á næstu vikum.  Sjá má myndir frá undirrituninni í myndasafni.