Aðalfundur DAB var haldinn 20. apríl
Aðalfundur DAB vegna rekstrarársins 2009 var haldinn í húsakynnum heimilisins þriðjudaginn 20. apríl síðastliðinn. Þar flutti formaður stjórnar, Magnús B. Jónsson, skýrslu stjórnar. Komu þar fram einlægar þakkir stjórnar til starfsmanna DAB fyrir gott og fórnfúst starf í þágu heimilisins. Rekstur heimilisins á árinu 2009 kom vel út og skilaði hagnaði frá reglubundnum rekstri. Velta heimilisins er komin upp í tæpar 300 milljónir og starfa 70 starfsmenn í 40 stöðugildum hjá DAB, er nú svo komið að DAB er einn af stærri vinnustöðum héraðsins.
Stjórn DAB hefur verið óbreytt frá því um mitt ár 2006 og er þannig skipuð.
Magnús B. Jónsson er formaður, Jón G. Guðbjörnsson er varaformaður, ritari er Ingunn Alexandersdóttir og meðstjórnendur eru Þór Þorsteinsson, Guðsteinn Einarsson og Sæunn Oddsdóttir.