Góð gjöf
DAB fékk góða gjöf afhenta á annan dag páska, Sigríður Inga Kristjánsdóttir frá Ferjubakka, gaf heimilinu Sálmakver til minningar um móður hennar, Sigríði Halldórsdóttur. Sálmakver þessi eru gefin út af Skálholtsútgáfunni og eru með úrvali sálma úr Sálmabók íslensku kirkjunnar prentað með stóru letri, þessi góða gjöf á eftir að nýtast íbúum á DAB vel.