Fréttir
Aðstandandafundur 15. maí kl. 16:00
	<description>Hér með er boðað til aðstandandafundar sem haldinn verður í samkomusal á 2. hæð DAB þriðjudaginn 15. maí n.k. kl. 16:00.
Kynnt verður staða mála varðandi framkvæmdir og kynnt hvernig skipulag er fyrirhugað í nýjum og endurbættum húsakynnum heimilisins.
f.h. Dvalarheimilis aldraðra Borgarnesi
Björn Bjarki Þorsteinsson
framkvæmdarstjóri</description>
Kleinubakstur á DAB
	<description>Þær tóku sig vel út nú í morgunsárið þessar valkyrjur sem voru við störf í borðsal DAB við undirbúning á kleinubakstri.  Það var greinilegt á öllu að þetta var ekki í fyrsta og ekki annað sinn sem þær Bessý, Guðbjörg og Fríða voru við þessa iðju, lærlingur hjá þeim var Þuríður Helgadóttir starfsmaður DAB.</description>
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra í heimsókn á DAB
	<description>Í mars s.l. kom stjórn og starfsmaður Framkvæmdasjóðs aldraðra í heimsókn á DAB.  Erindi hópsins var að kynna sér aðstæður og aðbúnað heimilismanna og starfsfólks DAB vegna umsóknar sem lá hjá sjóðnum frá DAB þar sem óskað var stuðnings við endurbætur á núverandi húsakosti heimilisins í kjölfar þess að ný álma verðut tekin í notkun í sumar.  Af hálfu DAB sátu fundinn Magnús B. Jónsson formaður stjórnar, Jón G, Guðbjörnsson varaformaður og Björn Bjarki Þorsteinsson framvæmdastjóri.  Á næstunni er að vænta svara við umsókn DAB til sjóðsins.</description>
Frestun á aðstandandafundi
	<description>Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðum aðstandandafundi sem vera átti miðvikudaginn 28. mars n.k.  Ný tíma og dagsetning verður kynnt innan skamms.
Virðingarfyllst,
Björn Bjarki Þorsteinsson
framkv.stjóri DAB</description>
Aðstandandafundur á DAB
	<description>Fyrirhugað er að halda aðstandandafund á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi miðvikudaginn 28. mars n.k. kl. 16:00.  Kynnt verður staða framkvæmda, hvernig stefnt er að því að halda utan um þær breytingar sem í vændum er varðandi hagi heimilismanna og þær breytingar sem fyrirsjáanlegar eru í skipulagi heimilishalds á DAB á næstunni.  Það er von okkar starfsmanna DAB að ættingjar og aðstandur heimilisfólks hafi tök á að mæta á þessum tíma.
Frekari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
f.h. DAB
Björn Bjarki Þorsteinsson</description>
Höfðingleg gjöf
	<description>Stjórn Kvenfélags Stafholtstungna kom á þorrablót heimilisfólks og starfsmanna DAB færandi hendi.  Færði formaður félagsins, Ása Erlingsdóttir, framkvæmdastjóra heimilisins Birni Bjarka Þorsteinssyni gjafabréf sem hljóðaði upp á kaup á 2 sjúkrarúmum.  Er þetta afar höfðingleg gjöf og er verðmæti hennar um 1 milljón króna.  DAB vill koma á framfæri kærum þökkum til Kvenfélags Stafholtstungna sem hefur ætíð verið einn af ötulustu bakhjörlum heimilisins eins og reyndar mörg önnur kvenfélög í héraðinu hafa verið.</description>
Síðbúið þorrablót heppnaðist vel
	<description>Þorrablót heimilisfólks og starfsmanna á DAB var fremur síðbúið þetta árið.  Eigi að síður var það fjörugt og skemmtilegt.  Kór nemenda í Menntaskóla Borgarfjarðar undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur söng nokkur vel valin lög og Dagbjartur Dagbjartsson flutti pistil með mörgum vel völdum vísum.  Að loknu borðhaldi og skemmtiatriðum lék Vignir Sigurþórsson undir dansi.  Tóku heimilismenn og starfsfólk þátt í dansinum af krafti.  Eftir dansinn þá var tekið til við að spila bingó undir styrkri stjórn Margrétar Sigurþórsdóttur og voru margir vinningar í boði en það eru starfsmenn DAB sem leggja til vinningar sem voru að venju flölbreyttir.  Myndir frá blótinu munu birtast á myndasíðu okkar.</description>
Samþætting á þjónustu við aldraðra á starfssvæði DAB
	<description>Í tengslum við 40 ára afmælishátíð Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi (DAB) sem haldinn var 29. janúar 2011 var haldið málþing á vegum stjórnar DAB í samstarfi við Atvinnuráðgjöf Vesturlands.  Þar var rætt um möguleika á samþættingu á þjónustu við aldraða á starfssvæði DAB sem spannar Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp og Skorradalshrepp.  Í tengslum við málþingið og í kjölfar þess var vinnuhópur að störfum sem skilað hefur af sér skýrslu sem nýst getur sem innlegg í frekara samtal um málaflokkinn.  Í vinnuhópnum sátu fulltrúar frá DAB, sveitarfélögunum og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands auk starfsmanna Atvinnuráðgjafarinnar.  Á næstunni munu hlutaðeigandi aðilar fara yfir niðurstöður skýrslunnar sem nálgast má hér.  Hér með eru öllum þeim sem að vinnunni komu þakkað fyrir þeirra framlag, ekki síst þeim sem tóku þátt í góðri umræðu á málþinginu í Hjálmakletti.</description>
Jólakveðja og jólamessa
	<description>Heimilsfólk og starfsfólk Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi sendir öllum velunnurum heimilisins hugheilar jóla og nýárskveðjur með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á 40 ára afmælisári DAB.  
Megi árið 2012 verða okkur öllum heilladrjúgt !
Guðsþjónusta verður á heimilinu á annan dag jóla, 26. desember kl. 16:30</description>
Fjör á jólaballi
	<description>Það var góð mæting á jólaball sem haldið var á Dvalarheimilinu sunnudaginn 18. desember s.l.  Heimilismenn sem og gestir mættu prúðbúnir á ballið.  Guðbjartur Björgvinsson kom með harmonikkuna og spilaði öll gömlu og góðu jólalögin meðan gengið var í kringum jólatréið.  Tveir jólasveinar mættu af fjöllum og tóku þátt í gleðinni og færðu unga fólkinu glaðning úr pokanum sínum.  Myndir eru komnar inn á myndasíðu okkar.</description>
Leikskólabörn í söngferðalagi
	<description>Það koma margir góðir gestir í heimsókn á Dvalarheimili aldrðra í Borgarnesi, ekki síst í aðdraganda jóla.  Þriðjudaginn 13. desember s.l. kom góður hópur leikskólabarna og starfsmanna Leikskólans Klettaborgar í Borgarnesi í heimsókn og söng fyrir heimilisfólk, sjá má myndir frá heimsókninni á myndasíðu okkar, dab.is</description>
Lionsfélagar í skoðunarferð um nýbyggingu
	<description>Nú nýverið komu félagar í Lionsklúbbi Borgarness í skoðunarferð um hjúkrunarálmu sem verið er að byggja við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.  Lionshreyfingin hefur stutt dyggilega við heimilið og skemmst er að minnast myndarlegrar peningagjafar sem hreyfingin afhenti DAB vegna kaupa á öryggiskerfi.  Sú fjárhæð mun koma að mjög góðum notum á komandi sumri þegar nýtt vakt- og öryggiskerfi verður sett upp á heimilinu.</description>
Rotary styrkir Hollvinasamtök DAB
	<description>Á jólafundi Rotaryklúbbsins í Borgarbyggð sem haldinn var miðvikudaginn 7. desember s.l. færði klúbburinn Hollvinasamtökum Dvalarheimilisins peningagjöf til kaupa á búnaði.  Stjórn Hollvinasamtakanna þakkar Rotaryfélögum hlýhug til handa heimilinu sem gjöf þessi endurspeglar.</description>
Jólaball
	<description>Jólaball verður haldið á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi sunnudaginn 18. desember n.k. kl.15:00.  Það er hefð að starfsmenn heimilisins blási til jólaballs og mæta þeir ásamt börnum og barnabörnum á þennan viðburð á ásamt heimilisfólki og aðstandendum þeirra.  Von er á góðum gestum af fjöllum ef veður leyfir.</description>
Fjölsótt aðventukvöld
	<description>Það var þétt setið í samkomusal Dvalarheimilisins þriðjudagskvöldið 6. desember þegar haldin var aðventusamkoma á heimilinu.  Kirkjukór Borgarneskirkju söng undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista ásamt því sem ungar stúlkur fluttu tónlistaratriði.  Séra Þorbjörn Hlynur Árnason predikaði.  Fjölmargir heimilismenn ásamt ættingjum og vinum tóku þátt í athöfninni og allir fengu sér kaffihressingu á eftir.</description>
Aðventusamkoma á DAB
	<description>Þriðjudagskvöldið 6. desember kl.20:00 verður aðventukvöld á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.  Sóknarprestur, séra Þorbjörn Hlynur Árnason, predikar og Kirkjukór Borgarness undir stjórn Steinunnar Árnadóttur syngur.
Ættingjar heimilisfólks og aðrir velunnarar heimilisins velkomnir.</description>
Góð mæting á basarinn
	<description>Það var að venju fjölmenni sem mætti á hinn árlega basar á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi sem haldinn var laugardaaginn 5. nóvember s.l.  Það er áralöng hefð fyrir því að halda basarinn fyrsta laugardag í nóvember og fyrir sumum er það orðin ákveðinn upptaktur að undirbúningi jóla.  Góður rómur var gerður að handavinnu heimilismanna og ekki síður að hlöðnu kaffiborði sem starfsmenn DAB sjá um að undirbúa í sjálfboðavinnu með bakstri og síðan afgreiðslu á sjálfan basarsdaginn.  Allur ágóði af kaffisölu rennur í ferðasjóð heimilismanna og ágóði af basarsölu rennur til efniskaupa fyrir handavinnustofu.</description>
Myndir frá Haustfagnaði DAB komnar inn á myndasíðuna
	<description>Haustfagnaður DAB var í fyrsta sinn haldinn í október.  Má rekja Haustfagnaðinn til gjafar sem heimilinu barst s.l. sumar þegar Samband borgfirskra kvenna gaf heimilinum rausnarlega gjöf og eitt af skilyrðum þeirrar gjafar var að verja henni til þess að gera "eitthvað skemmtilegt" eins og það var orðað.  Haustfagnaðurinn tókst vel, Jenný Lind Egilsdóttir, einn af starfsmönnum DAB var veislustjóri, Jóhannes Kristjánsson eftirherma kom og flutti gamanmál og þau Guðríður og Gunnar Ringsted skemmtu heimilisfólki með söng og gítarspili.  Kvöldið tókast afar vel og voru heimilismenn sáttir í lok dags.  Boðið var upp á pinnamat og skálað í léttvíni.  Starfsmenn DAB lögðu svo sannarlega sitt af mörkum við undirbúning og framkvæmd Haustfagnaðarins eins og svo oft áður þegar blásið er til fagnaðar á DAB.</description>
Basar - opinn dagur á DAB
	<description>Hinn árlegi basar á Dvalarheimili aldraðra i Borgarnesi verður haldinn n.k. laugardag, 5. nóvember.
Húsið opnar kl. 15:00 og verða munirnir til sýnis milli kl. 15:00 og 16:00.  Sala hefst stundvíslega kl. 16:00 - það er ekki posi á staðnum þannig að það er einungis tekið við reiðufé.
Kaffisala verður á staðnum kl. 15:00 - 17:00.  Ágóði af kaffisölu rennur í ferðasjóð heimilisfólks.
Allir hjartanlega velkomnir.</description>
Ötull bakhjarl DAB
	<description>Dvalarheimilið í Borgarnesi á marga dygga stuðningsaðila sem styðja við bakið á heimilinu.  Einn af þessum traustu bakhjörlum kom færandi hendi nú síðsumars og færði heimilinu að gjöf peningagjöf.  Guðný Baldvinsdóttir heitir þessi aðili, Guðný kemur nokkrum sinnum í viku að jafnaði í heimsókn á DAB og spjallar við vini og vandamenn á heimilinu. Guðný kemur gangandi frá heimili sínu og lætur ekki árin 97 sem hún hefur lifað aftra sér á neinn hátt.  Hafðu þökk fyrir Guðný stuðninginn og þínar góðu heimsóknir til okkar !</description>